Matthew 16

1Þá komu farísear og saddúkear, vildu freista hans og báðu hann að sýna sér tákn af himni. 2Hann svaraði þeim: ,,Að kvöldi segið þér: ,Það verður góðviðri, því að roði er á lofti.` 3Og að morgni: ,Illviðri í dag, himinninn er rauður og þungbúinn.` Útlit loftsins kunnið þér að ráða, en ekki tákn tímanna. 4Vond og ótrú kynslóð heimtar tákn, en eigi verður henni annað tákn gefið en tákn Jónasar.`` Síðan skildi hann við þá og fór. 5Þegar lærisveinarnir fóru yfir um vatnið, höfðu þeir gleymt að taka með sér brauð. 6Jesús sagði við þá: ,,Gætið yðar, varist súrdeig farísea og saddúkea.`` 7En þeir ræddu sín á milli, að þeir hefðu ekki tekið brauð. 8Jesús varð þess vís og sagði: ,,Hvað eruð þér að tala um það, trúlitlir menn, að þér hafið ekki brauð? 9Skynjið þér ekki enn? Minnist þér ekki brauðanna fimm handa fimm þúsundum og hve margar körfur þér tókuð saman? 10Eða brauðanna sjö handa fjórum þúsundum og hve margar körfur þér tókuð saman? 11Hvernig má það vera, að þér skynjið ekki, að ég var ekki að tala um brauð við yður. Varist súrdeig farísea og saddúkea.`` 12Þá skildu þeir, að hann hafði ekki talað um að varast súrdeig í brauði, heldur kenningu farísea og saddúkea. 13Þegar Jesús kom í byggðir Sesareu Filippí, spurði hann lærisveina sína: ,,Hvern segja menn Mannssoninn vera?`` 14Þeir svöruðu: ,,Sumir Jóhannes skírara, aðrir Elía og enn aðrir Jeremía eða einn af spámönnunum.`` 15Hann spyr: ,,En þér, hvern segið þér mig vera?`` 16Símon Pétur svarar: ,,Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs.`` 17Þá segir Jesús við hann: ,,Sæll ert þú, Símon Jónasson! Hold og blóð hefur ekki opinberað þér þetta, heldur faðir minn á himnum. 18Og ég segi þér: Þú ert Pétur, kletturinn, og á þessum kletti mun ég byggja kirkju mína, og máttur heljar mun ekki á henni sigrast. 19Ég mun fá þér lykla himnaríkis, og hvað sem þú bindur á jörðu, mun bundið á himnum, og hvað sem þú leysir á jörðu, mun leyst á himnum.`` 20Þá lagði hann ríkt á við lærisveinana að segja engum, að hann væri Kristur. 21Upp frá þessu tók Jesús að sýna lærisveinum sínum fram á, að hann ætti að fara til Jerúsalem, líða þar margt af hendi öldunga, æðstu presta og fræðimanna og verða líflátinn, en rísa upp á þriðja degi. 22En Pétur tók hann á einmæli og fór að átelja hann: ,,Guð náði þig, herra, þetta má aldrei fyrir þig koma.`` 23Jesús sneri sér við og mælti til Péturs: ,,Vík frá mér, Satan, þú ert mér til ásteytingar, þú hugsar ekki um það, sem Guðs er, heldur það, sem manna er.`` 24Þá mælti Jesús við lærisveina sína: ,,Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér. 25Því að hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því, og hver sem týnir lífi sínu mín vegna, mun finna það. 26Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn og fyrirgjöra sálu sinni? Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína? 27Mannssonurinn mun koma í dýrð föður síns með englum sínum, og þá mun hann gjalda sérhverjum eftir breytni hans. 28Sannlega segi ég yður: Nokkrir þeirra, sem hér standa, munu eigi dauða bíða, fyrr en þeir sjá Mannssoninn koma í ríki sínu.``
Copyright information for Icelandic